Jón Ólafsson

ID: 7258
Fæðingarár : 1825
Fæðingarstaður : Húnavatnssýsla
Dánarár : 1885

Jón Ólafsson fæddist í Húnavatnssýslu árið 1825. Dáinn í N. Dakota árið 1885.

Maki: Ragnheiður Jóhannsdóttir f. í Skagafjarðarsýslu árið 1835.

Börn: 1. Guðrún f. 1866 2. Sigurbjörg f. 1869 3. Sigurður f. 1873.

Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1883 og fóru þaðan sama ár til N. Dakota. Námu land suðvestur af Hallson. Þar lést Jón eftir tveggja ára búsetu. Eftir nokkurra ára basl flutti Ragnheiður norður til Winnipeg en þangað voru þá dætur hennar komnar. Sigurður flutti norður til Winnipeg árið 1896 og þaðan lá leið hans norður í Nýja Ísland.