Jón Pétursson

ID: 7232
Fæðingarár : 1835
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla
Dánarár : 1921

Jón Pétursson fæddist í Skagafjarðarsýslu 21. nóvember árið 1835. Dáinn í Edmonton í Alberta 22. janúar, 1921.

Maki: 23. október, 1860 Ingunn Ólafsdóttir f. í Skagafjarðarsýslu 6. nóvember, 1841, d. 15. maí, 1912 í Edmonton.

Börn: 1. Jón 1. maí, 1860, d. 6. febrúar, 1949 2. Málfríður f. 28. september, 1861, d. 30. júlí, 1944 3. Pétur f. 14. nóvember, 1867, d. úr bólusótt í Nýja Íslandi 7. nóvember, 1876 4. Eyjólfur f. 17. október, 1868, d. 3. september, 1876.

Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1876 og fóru strax til Nýja Íslands og settust að í Fljótsbyggð. Fluttu þaðan árið 1880 í Beaulieubyggð vestur af Hallson í N. Dakota. Fluttu þaðan árið 1889 til Markerville í Alberta. Síðustu árin sín bjó Jón hjá Jóni, syni sínum í Edmonton.