
Jón Runólfsson Mynd VÍÆ IV
Jón Runólfsson fæddist 31.ágúst árið 1855 í Snjóholti í Eiðaþinghá í S. Múlasýslu. Dáinn 12.september, 1930
Ókvæntur og barnlaus
Fór til Minneota í Minnesota árið 1879 en þangað fluttu foreldrar hans, Runólfur Jónsson og Margrét Bjarnadóttir árið 1877. Jón flutti til Manitoba og gerðist kennari í Mikley árið 1883.
Jón var þekkt skáld, ,, öllum þorra Íslendinga, bæði austan hafs og vestan, vel kunnur fyrir ljóð sín og gáfur“.
Hann gaf út ljóðabókina Þögul Leiftur þar sem m.a. er að finna hinn fræga ljóðbálk Tennysons, ,,Enoch Arden“ í þýðingu Jóns.
Lára Guðjónsen, eiginkona séra Jóns Bjarnasonar, gaf út Lauf-Blöð, safn ,,á söngvum með íslenzkum textum“ árið 1899. Þar kom Jón Runólfsson nokkuð við sögu með þýðingum og frumsömdu efni.
