Jón Sigurðsson

ID: 1705
Fæðingarár : 1882

Jón Sigurðsson Mýrmann Mynd VÍÆ I

Jón Sigurðsson fæddist í A. Skaftafellssýslu 15. júlí, 1882. Mýrmann vestra

Maki: 31. júlí, 1914 Guðrún Bjarnadóttir f. í Skagafjarðarsýslu 14. júlí, 1876, d. í Winnipeg 4. mars, 1943. Mýrmann vestra.

Börn: 1. Sigríður Jórunn f. 19. maí, 1919.

Jón fór til Vesturheims árið 1903 með móður sinni, ekkjunni Þuríði Þorsteinsdóttur og systkinum. Þau settust að í Winnipeg þar sem Jón bjó til ársins 1946. Þá flutti hann vestur til Vancouver. Hann stundaði fiskveiðar í Manitobavatni.  Guðrún flutti einsömul vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1905. Bjó þar alla tíð.