ID: 12200
Fæðingarár : 1897
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1956

Jón Sigurðsson Hólm og Ingigerður Guðmundsdóttir Mynd ACU
Jón Sigurðsson fæddist í N. Múlasýslu 27. nóvember, 1897. Dáinn í Manitoba 20. september, 1956. Jon Sigurdsson Holm vestra.
Maki: 27. maí, 1926 Ingigerður (Inga) Elín Guðmundsdóttir f. 25. mars, 1898, d. 3. febrúar, 1952 í Manitoba.
Barnlaus.
Jón flutti vestur árið 1902 til Minnesota með foreldrum sínum, Sigurði Eiríkssyni og Guðrúnu Jónsdóttur. Jón flutti með þeim til Manitoba árið 1904 og settust þau að í Framnesbyggð. Þar nam Jón land. Ingigerður var dóttir Guðmundar Magnússonar frá Kothvammi í Húnavatnssýslu og Ólínar Jóhannsdóttur úr Skagafirði.
