Jón Þ Benjamínsson

ID: 11365
Fæðingarár : 1877
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla

Jón Þorgrímur Benjamínsson fæddist 6. febrúar, 1877 í N. Múlasýslu. Jon B. Thorgrimson vestra.

Maki: Mildred J. f. 31. desember, 1899 í Minnesota, d. 24. september, 1982 í Brown sýslu.

Börn: 1. John Edward f. 1923 2. James Gunnar f. 6. júlí, 1925, d. 1979 í Kaliforníu.

Hann flutti vestur árið 1879 með foreldrum sínum, Benjamín Þorgrímssyni og Gunnhildi Magnúsdóttur. Þau settust að í Minnesota. Árið 1900 er Jón skráður íbúi í Ballard í Washington en þaðan flutti hann aftur til Minnesota og bjó í Ivanhoe í Lincoln sýslu þegar hann var skráður í herinn 1914. Árið 1920 er hann þar enn, kvæntur en býr einn og tíu árum síðar er hann skráður trésmiður í Minneapolis.