Jón V Dínusson

ID: 9741
Fæðingarár : 1862
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1906

Jón Valdimar Dínusson fæddist 22. september, 1862 í S. Þingeyjarsýslu. Dáinn í Winnipeg, 9. júní, 1906.

Maki: 8. ágúst, 1886 í N. Dakota Kristín Guðný Guðnadóttir f. í S. Þingeyjarsýslu árið 1866, d. árið 1935 í Selkirk.

Börn: 1. Kristjana Sigurrós f. 20. júní, 1887, d.1917 2. Anna Sigríður f. 12. febrúar, 1889 3. Björg Ágústa f. 19. desember, 1890, d. 1926 í Manitoba 4. Guðný Rósa f. 20. janúar, 1893 5. Sigurbjörn Gunnlaugur f. 21. júní, 1895, d. 1956 í Selkirk 6. William F. f. 12. október, 1897 7. Lillian Pearl f. 1900, d. sama ár 8. Sylvía Hólmfríður f. 2. júlí, 1902

Jón Valdimar flutti vestur árið 1879 með foreldrum sínum, Dínusi Jónssyni og Kristjönu Andrésdóttur sem settust að í N. Dakota. Jón hóf búskap í Hallson í N. Dakota en flutti um aldamótin til Winnipeg. Kristín fór árið 1882 vestur til N. Dakota með foreldrum sínum, Guðna Guðmundssyni og Rósu Sigurðardóttur sem bjuggu á Mountain í N. Dakota.