Jóna G Jónsdóttir

ID: 11983
Fæðingarár : 1880
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1972

Jóna Guðríður Jónsdóttir fæddist í N. Múlasýslu 4. desember, 1880. Dáin í Winnipeg árið 1972.

Maki: 10. nóvember, 1903 Sigurjón Sigurðsson f. 22. maí, 1878 í Árnesi í Nýja Íslandi, d. í Winnipeg árið 1945.

Börn: 1. Sigurjón Arnþór f. 6. janúar, 1906 2. Franklín f. 21. janúar, 1907 3. Karl Óskar (Carl Oscar) f. 3. maí, 1913 4. Jóna Margrét f. 5. nóvember, 1914, tvíburi 5. Snjólaug Anna f. 5. nóvember, 1914.

Jóna Guðríður fór vestur með móður sinni, Arnþrúði Vigfúsdóttur árið 1889 og bjuggu þær í Winnipeg. Þar útskrifaðist Jóna sem kennari frá Provincial Normal School og var ráðinn kennari í Hnausa skóla árið 1899. Þar kynntist hún Sigurjóni, giftist honum og þar bjuggu þau til ársins 1906. Sigurjón var sonur Sigurðar Sigurbjörnssonar og Snjólaugar Jóhannesdóttur landnema í Nýja Íslandi. Hann ólst upp í Árnesi, gekk þar í skóla og að námi loknu fékk hann vinnu í Sigurdsson Brothers General Store á Hnausum. Þar lærði hann bókhald og venjuleg verslunarstörf sem reyndust honum vel alla ævi. Árið 1906 fluttu þau til Winnipeg þar sem Sigurjón og mágur hans, Jón Vopni opnuðu verslun, Vopni-Sigurdson Co. Þegar ákveðið var að leggja járnbraut í Árdal (nú Árborg) ákvað Sigurjón að flytja þangað og árið 1909 voru þau sest þar að. Þar bjuggu þau til ársins 1941, fluttu þá til Winnipeg.