Jónas Hallgrímsson

ID: 9210
Fæðingarár : 1852
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1931

Jónas situr fyrir fram Káinn og Stephan G Stephansson  Mynd SÍND

Sigríður Herdís Kristjánsdóttir Mynd SÍND

Jónas Hallgrímsson fæddist í Eyjafjarðarsýslu 1. ágúst, 1852. Dáinn í N. Dakota árið 1931. Jonas Hall vestra.

Maki: 1874 Sigríður Herdís Kristjánsdóttir f. 2. nóvember, 1852 í S. Þingeyjarsýslu.

Börn: 1. Steingrímur Kristján f. 16. nóvember, 1877 á Gimli 2. Jóhann Gunnar f. 12. mars, 1879 á Gimli 3. Arthur Frímann f. 15. apríl, 1882 í Garðarbyggð 4. Ástvaldur Kjartan f. 11. febrúar, 1884 í Garðarbyggð 5. Jakob Friðrik f. 29. mars, 1886 í Garðarbyggð 6. Vilhjalmur Franklin f. 18. apríl, 1888 í Garðarbyggð.

Jónas og Sigríður fluttu vestur um haf árið 1874 og fóru til Ontario í Kanada. Þau bjuggu fyrst um sinn í Toronto en fluttu þaðan til Millbrook og vann Jónas hvaða vinnu sem bauðst. Vorið 1877 fóru þau vestur til Winnipeg þer sem þau bjuggu til hausts en fóru þá til Gimli.  Þaðan lá leiðin til Garðar í N. Dakota þar sem þau bjuggu alla tíð.

Íslensk arfleifð :