Jónas Helgason

ID: 3260
Fæðingarár : 1875
Fæðingarstaður : Mýrasýsla
Dánarár : 1946

Jónas Helgason fæddist 23. apríl, 1875 í Mýrasýslu. Dáinn árið 1946 í Bellingham í Washington. Goodman vestra.

Maki: Sigríður Þórðardóttir f. í N. Múlasýslu 14. mars, 1877, d. í N. Dakota árið 1925. Sarah Benson vestra.

Börn: 1. María (Mary) Sigríður f. 27. febrúar, 1897. Sigríður eignaðist son, Chris árið 1895.

Sigríður flutti vestur til N. Dakota árið 1883 með foreldrum sínum, Þórði Benediktssyni og Maríu Sveinsdóttur. Jónas flutti þangað 1881 með foreldrum sínum, Helga Guðmundssyni og Helgu Eyvindsdóttur. Báðar fjölskylurnar settust að í Mouse River byggð og þar bjuggu Jónas og Sigríður.