ID: 5634
Fæðingarár : 1867
Fæðingarstaður : Húnavatnssýsla
Dánarár : 1941

Jónas Jónasson Mynd VÍÆ IV
Jónas Jónasson fæddist í Húnavatnssýslu 11. september, 1867. Dáinn í Winnipeg 21. apríl, 1941.
Maki: 1898 Guðrún Pétursdóttir f. 8. febrúar, 1876 í Árnessýslu. Þau skildu árið 1904.
Barnlaus en ólu upp Guðrúnu Ívarsdóttur, systurdóttur Guðrúnar.
Jónas flutti vestur árið 1890, samferða Guðrúnu, systur sinni og Jóni Skúlasyni, hennar manni. Hann settist að í Winnipeg og bjó þar alla tíð. Guðrún flutti til Vesturheims árið 1888 með foreldrum sínum, Pétri Einarssyni og Höllu Magnúsdóttur, og systkinum. Hún átti erfitt vestra og flutti aftur til Íslands árið 1904.
