ID: 10881
Fæðingarár : 1853
Fæðingarstaður : N. Þingeyjarsýsla
Jónas Jónatansson fæddist í N. Þingeyjarsýslu árið 1853. Dáinn 23. ágúst, 1883 í Chatham í Ontario.
Ókvæntur og barnlaus.
Jónas var sonur Jónatans Þorkelssonar og Guðlaugar Jónsdóttur í Þistilfirði. Fór vestur til Ontario í Kanada árið 1874, var trúlega fyrsta veturinn í Kinmount. Þaðan flutti hann til Alvinston og var þar þegar frændi hans, Einar Hermann Jónsson kom þangað árið 1879. Þeir voru þremenningar. Einar vann þar um hríð, flutti seinna til London í Ontario og loks til Chathham. Þangað flutti Jónas líka en lifði þar ekki lengi.
