Jónas Jónsson: Fæddur í Lýtingsstaðahreppi í Skagafjarðarsýslu árið 1848. Dáinn 30. maí, 1917 í Argylebyggð.
Maki: 28. júlí, 1892 Kristfríður Jensína Torfadóttir f. í Dalasýslu árið 1873, d. 1922.
Börn: 1. Kristjón Ágúst f. 29. ágúst, 1893 2. Sigurbjörg Súsanna f. 15. apríl, 1896 3. Símon Pétur f. 27. apríl 4. Ingibjörg Aldís f. 18. janúar, 1901 5) Torfi Jens Júlíus f. 25. júlí, 1904.
Jónas fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1876 og fór áfram í Fljótsbyggð í Nýja Íslandi. Kristfríður fór með föður sínum og stjúpu árið 1887 í Argylebyggð. Þótt Jónas hafi verið með fyrstu landnámsmönnum í Fljótsbyggð þá bjó hann þar ekki heldur flutti til High Bluff þar sem hann var til ársins 1884 en þá tók hann land í Argylebyggð og bjó þar lengi. Flutti loks þaðan suður að Belmont.
