Jónas Stefánsson

ID: 7059
Fæðingarár : 1845
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla
Dánarár : 1911

Jónas Stefánsson, Steinunn Grímsdóttir og börn þeirra. Mynd FAtV

Jónas Stefansson fæddist í Skagafjarðarsýslu 16. janúar, 1845. Drukknaði í Gimli höfn 1. september, 1911.

Maki: 30. nóvember, 1873 Steinunn Grímsdóttir f. 1848 í Skagafjarðarsýslu.

Börn: 1. Steinunn f. 1873 á Íslandi 2. Eugine 3. Sigtryggur 4. Jónassína.

Þau fluttu vestur til Ontario í Kanada árið 1874 og voru þar fram á mitt ár 1875. Þá fóru þau vestur til Winnipeg og þaðan til Nýja Íslands. Þau námu land í Árnesbyggð og bjuggu þar í fjögur ár en þá settust þau að í Gimli.