ID: 12183
Fæðingarár : 1862
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1951

Dætur Jónatans og Ingibjargar Mynd SÍND

Halldór og Árni Jónatanssynir Mynd SÍND
Jónatan Árnason fæddist árið 1862 í Vopnafirði í N. Múlasýslu. Dáinn 24. nóvember, 1951.
Maki: 1889 Ingibjörg Bjarnadóttir f. 19. maí, 1865 í Dalasýslu, d. 1. júlí, 1938.
Börn: 1. Halldór Valdimar 2. Guðbjörg 3. Sigríður 4. Stefanía 5. Guðrún 6. Lára 7. Þórunn 8. Ingibjörg 9. Málfríður 10. Nanna 11. Árni, lést 16. ára. Eitt dó ungbarn.
Jónatan fór vestur til Ontario í Kanada árið 1878 með móður sinni, Þórunni Jónsdóttur, systkinum og stjúpa, Guðmundi Þórðarsyni. Þau fóru þaðan sama ár til Norður Dakota. Jónatan og Ingibjörg námu land í Sandhæðabyggð í N. Dakota og bjuggu þar alla tíð.
