Jónatan Dínusson

ID: 9743
Fæðingarár : 1870
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1901

Jónatan Dínusson fæddist í S. Þingeyjarsýslu 25. desember, 1870. Dáinn 11. febrúar, 1901 á Mountain, N. Dakota.

Maki: 1893 Þorbergína Björnsdóttir f. 7. maí, 1875 í N. Múlasýslu, d. 12. febrúar, 1945 á Mountain.

Börn: 1. Andrés Sigurbjörn f. 1894 2. Hjálmar f. 15. janúar, 1896, d. 18. maí, 1896 3. Jónatan f. 18. maí, 1897, d. 20. september, 1897 4. Hólmfríður f. 12. desember, 1898, d. 9. maí, 1900.

Jónatan fór vestur árið 1879 með foreldrum sínum, Dínusi Jónssyni og Kristjönu Andrésdóttur sem bjuggu í Svold í N. Dakota. Hann bjó fyrst í Akrabyggð en seinna á Mountain. Þorbergína flutti vestur árið 1886 með foreldrum sínum, Birni Geirmundssyni og Guðrúnu Jónsdóttur. Hún bjó á Mountain eftir lát Jónatans.