Jónatan D Björnsson

ID: 16511
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1913

Jónatan D Bjðrnsson Mynd VÍÆ III

Sigríður Björnsdóttir Mynd VÍÆ III

Jónatan Dínus Halldórsson fæddist 28. desember, 1913 í Hallson í N. Dakota. Björnsson vestra.

Maki: 3. desember, 1936 Sigríður Björnsdóttir f. 24. október, 1879.

Börn: 1. Jonatan Dinus f. 4. september, 1938 2. Margaret Anne f. 9. nóvember, 1943.

Foreldrar Jónatans voru Halldór Björnsson, ættaður úr Rangárvallasýslu og Ingibjörg Jakobína Dínusdóttir úr S. Þingeyjarsýslu. Jónatan ólst upp í sveitinni nærri Hallson í N. Dakota og vann þar ungur við landbúnað. Seinna varð hann verkstjóri hjá Boeing Airplane Co. Hann gerði hlé á vinnu, flutti vestur að Kyrrahafi til Seattle og fór í söngnám. Að því loknu söng hann í kirkjukórum og fáeinum óperum í borginni. Kom víða fram í íslenskum byggðum í Utah svo og í Kanada.