Jónína Ásmundsdóttir

ID: 12924
Fæðingarár : 1865
Dánarár : 1948

Jónína Ásmundsdóttir fæddist 1864 í N. Múlasýslu, d. 22. september, 1948 í Winnipeg.

Maki: 3. ágúst, 1885 Jóhannes Hannesson fæddist 4. desember, 1858 í Skagafjarðarsýslu. Dáinn 3. september, 1947 í Winnipeg.

Börn: 1. Sigurbjörg Louise f. 1886 2. Kristín Laufey f. 1888 3. Grace Theodora f. 1894 4. E. Anne f. 1898 5. Hugh Lawrence f. 14. ágúst, 1906.

Jónína var dóttir Ásmundar Þorsteinssonar og Bergþóru Jónsdóttur landnema í Manitoba árið 1876. Foreldrar  Jóhannesar voru Hannes Halldórssonar og Sigurlaug Þorsteinsdóttir í Hólasókn í Skagafjarðarsýslu. Hann flutti vestur með móður sinni, ekkjunni, Sigurlaugu Þorsteinsdóttur og systur sinni Sigríði árið 1883. Þrjú systkini hans höfðu flutt vestur árið 1876. Árið 1887 opnaði Jóhannes verslun á Gimli í félagi við eldri bróður sinn, Hannes. Þar bjuggu Jónína og Jóhannes alla tíð, nema síðustu ár sín voru þau í Winnipeg.