
Jónína Þuríður Daníelsdóttir Mynd VÍÆ V
Jónína Þuríður Daníelsdóttir fæddist í N. Múlasýslu 13. júní, 1890. Dáin 29. júlí, 1970 í Geysirbyggð. Ninna Thordarson vestra.
Maki: 23. júní, 1919 Johannes Thordarson f. í Geysirbyggð 4. febrúar, 1897.
Börn: 1. Guðrún Anna 2. Ólöf Rósbjörg 3. Jóhannes Victor (Brodie).
Jónína var dóttir Daníels Frímanns Daníelssonar og Guðrúnar Magnúsdóttur sem vestur fluttu árið 1894. Þau settust að í Hnausabyggð í Nýja Íslandi. Jóhannes var sonur Sigurjóns Þórðarsonar og Önnu Jónsdóttur sem vestur fluttu árið 1892 og settust að í Geysirbyggð. Foreldrar beggja bjuggu hjá þeim að Neshaga í Geysisbyggð.Jóhannes stundaði alla tíð búskap í Nýja Íslandi. Eftir mörg í Geysisbyggð fluttu þau til Gimli þar sem Jóhannes stundaði loðdýrarækt. Hjónin vörðu miklim tíma ævinnar við að efla tengsl Vestur Íslendinga við Ísland. Þau heimsóttu landið ótal sinnum.
