Jónína H Hallsdóttir

ID: 7107
Fæðingarár : 1865
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla
Dánarár : 1886

Jónína Helga Hallsdóttir fæddist í Skagafjarðarsýslu árið 1865. Dáin í Manitoba í september 1886.

Maki: 1882 Magnús Markússon f. 27. nóvember, 1858 í Skagafjarðarsýslu, d. í Winnipeg 20. október, 1948.

Börn: Hallfríður Guðrún Magnúsdóttir f. 1885, d. í Winnipeg í september 1886.

Jónína flutti vestur til Winnipeg árið 1886 með manni sínum og dóttur. Þar lést hún nýkomin vestur og dóttir hennar sömuleiðis.