Jónína Helga Jónasdóttir fæddist í S. Þingeyjarssýslu árið 1866. Dáin 10. ágúst, 1925 í N. Dakota.
Maki: 16. mars, 1889 Eggert Thorlacius f. í Eyjafjarðarsýslu árið 1857, d. 3. júlí, 1934 í Hensel í N. Dakota.
Börn: 1. Guðrún Lára f. 1. desember, 1890 2. Tómas Þorvarður f. 13. desember, 1892 3. Ingibjörg f. 1893 4. Margrét Ingibjörg f. 24. október, 1895 5. Rannveig Sigríður f. 18. september, 1897 6. Skúlína Elísabet f. 22. september, 1899 7. Lára 8. William Þórður d. á barnsaldri 9. Páll Eyjólfur f. 4. maí, 1903 10. Þórvör Marselína f. 24. ágúst, 1907 11. Kristín Theodora f. 24. ágúst, 1907.
Jónína fór vestur til Nýja Íslands árið 1876 með foreldrum sínum, Jónasi Kortssyni og konu hans, Margréti Sveinsdóttur. Eggert flutti einsamall vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1886. Hann og Jónína námu land í Sandhæðabyggð í N. Dakota.
