Jónína Sigfúsdóttir

ID: 8917
Fæðingarár : 1865
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1948

Jónína I Sigfúsdóttir Mynd VÍÆ II

Jónína Ingibjörg Sigfúsdóttir fæddist 1865 í Eyjafjarðarsýslu. Dáin í Arborg í Manitoba 18. maí, 1948.

Maki: 24. október, 1884 Einar Jónasson f. 7. janúar, 1848 í Dalasýslu, d. á Gimli í Manitoba 25. ágúst, 1930.

Börn: 1. Guðný  Elín f. 2. ágúst, 1885 2. Einar Sigurjón f. 17. júní, 1887 3. Ólöf Anna  f. 17. október, 1890 4. Ásta f. 20. júní, 1892 5. Jónas 9. október, 1894 6. Baldur Norman f. 28. október, 1896 7. Florence f. 28. apríl, 1900 8. Edwin Ágúst 10. október, 1902 8. Jóhannes Kristinn f. 19. nóvember, 1904.

Ingibjörg fór vestur árið 1876 með foreldrum sínum, Sigfúsi Ólafssyni og Elínu Jónsdóttur. Þau settust að á Gimli en fóru þaðan suður til N. Dakota og settust að í Sandhæðabyggð. Einar fór vestur til Ontario í Kanada árið 1874 og var í Kinmount í eitt ár. Hann var valinn í nefnd þá er valdi nýlendusvæði fyrir Nýja Ísland sumarið 1875. Hann nam land þar norður af Gimli í Árnesbyggð og nefndi staðinn Hvítanes. Bjó líka í Mikley og Unalandi í Fljótsbyggð. Flutti  suður í Hallsonbyggð í N. Dakota árið 1881 og þaðan í Tingvallabyggð nokkru seinna. Þaðan flutti hann svo vestur í Markervillebyggð í Alberta árið 1888 og til Kelowna í Bresku Kolumbíu árið 1892. Sneri aftur til Nýja Íslands árið 1899 og settist að á Gimli.