Jórunn Jónsdóttir

ID: 8686
Fæðingarár : 1850
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1904

Jórunn Jónsdóttir fæddist 1850 í Eyjafjarðarsýslu, d. 5. september, 1904 í Minneapolis.

Maki: Páll Gunnarsson f. 26. desember, 1852 í Eyjafjarðarsýslu. Gunderson vestra

Börn: 1. Fanney (Fanny) f. 1879 í Kanada, d. 14. febrúar, 1934. Fósturbarn: Aðalbjörg Jóhannesdóttir f. 1875 í Eyjafirði.

Þau fluttu vestur til Kanada árið 1878 og voru í Winnipeg einhvern tíma áður en þau fluttu suður til Minneapolis í Minnesota. Þar vann Páll hjá járnbrautarfélagi.