ID: 11987
Fæðingarár : 1871
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1947

Þorsteinn Jósef Guttormsson Mynd VÍÆ I
Þorsteinn Jósef Guttormsson: Fæddur í N. Múlasýslu 16. maí 1871. Dáinn 8. nóvember, 1947.
Maki: 1905 Jóhanna Guðfinna Jónasdóttir f. 15. maí 1885 við Íslendingafljót, d. 5. nóvember, 1959.
Börn: 1. Jónas Guttormur dó ungur 2. Lilja María f. 28. júní, 1908 3. Stefán Valdimar f. 5. janúar, 1912 4. Baldur Franklín f. 20. október, 1916.
Þorsteinn Jósef flutti vestur með foreldrum sínum, Guttormi Þorsteinssyni og Birgittu Jósefsdóttur, árið 1893. Hann tók fyrst land en keypti seinna land af Páli Halldórssyni á Geysi sem hann kallaði Brekka og þar bjó Þorsteinn.
