ID: 4100
Fæðingarár : 1875
Fæðingarstaður : Dalasýsla

Jósef Oddsson Mynd Almanak 1929

Ingibjörg Jónsdóttir Almanak 1929
Jósef Oddsson fæddist 9. febrúar, 1875. J. O. Magnusson vestra.
Maki: 1901 Ingibjörg Jónsdóttir f. 10. júní, 1883 í Dalasýslu.
Börn: 1. Emily 2. Lára Sigurrós 3. Katrín Margrét 4. Esther Steinunn 5. Florence Ólína 6. Alice Jónína
Jósef fór vestur með frænku sinni Halldóru Jósefsdóttur og hennar manni árið 1888. Þau settust að í Hallson í N. Dakota þar sem foreldrar hans og systkini höfðu sest að árið 1886. Þarna bjó Jósef fram yfir aldamót en þá flutti hann og Ingibjörg til Blaine í Washingtonríki. Þar rak hann vefnaðarvöruverslun. Seinna flutti hann þaðan til Lynden í sama ríki en þar var hann búsettur árið 1960.
