Júlíus Benediktsson

ID: 8304
Fæðingarár : 1872
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla

Júlíus Benediktsson Mynd SÍND

Júlíus Benediktsson fæddist árið 1872 í S. Þingeyjarsýslu.

Hann fór vestur til Ontario í Kanada með foreldrum sínum, Benedikt Jónssyni úr Bárðardal og Sesselju Pálsdóttur, ömmu sinni, Dýrleifu Björnsdóttur og Benedikt bróður sínum. Þau bjuggu í Rosseau í Ontario í tvö ár, fóru þaðan vestur í Nýja Ísland árið 1875 þar sem þau bjuggu í þrjú ár. Júlíus fylgdi fjölskyldunni á þessum árum svo og til N. Dakota árið 1878 og bjó með þeim fyrst í Hallson og seinna í Garðarbyggð.