Júníus Jónsson

ID: 7067
Fæðingarár : 1884
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla
Dánarár : 1964

Júníus Jónsson fæddist í Skagafjarðarsýslu 5. júní, 1884. Dáinn í Saskatchewan 21. nóvember 1964.

Maki: Elisabeth Eleaner Mighton f. 1890, d. 1989.

Börn: 1. Margaret Abigail f. 19. desember, 1913 2. Ragnar Mighton f. 1915 3. Douglas William f. 1918.

Júníus fór vestur um haf árið 1900 með föður sínum og settust þeir að í Nýja Íslandi. Júníus fékk starf með mælingamönnum Kanada og ferðaðist hann víða um sléttuna og vestur í Klettafjöll. Settist að í Saskatoon árið 1907 og var þar verkefnastjóri um árabil. Flutti þaðan til Prince Albert árið 1921 og bjó þar. Sjá meir um hann í Bæir og borgir/Saskatoon.