Karólína Jónasdóttir

ID: 8410
Einstætt foreldri
Fæðingarár : 1853
Dánarár : 1946

Sigríður Karólína Jónasdóttir fæddist í Krossavík í S. Þingeyjarsýslu 23. febrúar, 1853. Dáin árið 1946 í Bellingham.

Maki: 1877 Jóhann G Jóhannsson f. í Skagafirði 31. október, 1851, d. á Point Roberts árið 1928.

Börn: 1. Jónas Gottfreð f. á Akureyri árið 1884. 2. Sigurbjörg d. í Pipestone 1910 3. Bergrós, yngst d. 10 ára í Brandon, Manitoba.Tvær dætur, báðar skírðar Kristín Dagbjört dóu í æsku.

Jóhann flutti vestur til Manitoba árið 1886 en Karólína kom þangað ári síðar með soninn Jónas Gottfreð. Þau bjuggu fyrst í Argylebyggð, fluttu þaðan í Pipestone, Manitoba árið 1892. Fluttu þaðan árið 1918 til Point Roberts í Washington.