Karólína Kristjánsdóttir

ID: 10582
Fæðingarár : 1879
Fæðingarstaður : N. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1950

Karólína Kristjánsdóttir fæddist í N. Þingeyjarsýslu árið 1879. Dáin í Manitoba 25. júní, 1950. Caroline Anderson vestra.

Maki: Sigfús Árnason fæddist í N. Þingeyjarsýslu árið 1874. Dáinn í Betel á Gimli árið 1957. Sigfus Anderson vestra.

Börn: 1. Kristján f. á Íslandi (Alli Anderson vestra) 2. Árni f. 1903 á Íslandi 3. Guðný f. í Vestfold, Manitoba 4. Halldór f. í Winnipeg 5. Marcella f. í Winnipeg 1913, d. 1937.

Þau fluttu vestur árið 1905 og settust að í Vestfold í Manitoba. Bjuggu þar til ársins 1910 en þá fluttu þau til Winnipeg þar sem Sigfús vann hjá Manitoba Gypsum Co. Þaðan lá svo leið þeirra í Árnesbyggð í Nýja Íslandi árið 1922 en fóru svo í Brownbyggð, syðst í Manitoba árið 1924. Árið 1931 settust þau að í Lundarbyggð þar sem Sigfús nam land og þar voru þau til ársins 1948. Þá fóru þau til Kristjáns, sonar síns í Eriksdale skammt norður af Lundar en þar var hann bóndi.