Katrín Elísabet Sveinsdóttir fæddist 21. október, 1871 í N. Múlasýslu. Dáin í N. Dakota 19. desember, 1957.
Maki: 1) 1892 Jón Jónsson fæddist á Hóli í Skagafjarðarsýslu 10. apríl, 1848, d. 1929 Hillman vestra. 2) Walter Hillman. vesturíslensk heimild segir hann hafa verið bróðir Jóns.
Börn: 1. Louis f. c1900 2. Jón f. c1903 3. Magnús f. 1905 4. Elísabet Gróa f. 7. júlí, 1910. Elísabet átti son, Jón fyrir hjónaband.
Katrín var dóttir Sveins Þorsteinssonar og Sigurbjargar Björnsdóttur og flutti með þeim vestur til Manitoba árið 1876. Jón fór vestur til Ontario í Kanada árið 1874 með föður sínum og bróður. Þeir fóru þaðan austur í Markland í Nova Scotia þar sem þeir bjuggu til ársins 1882. Þá hafði Jón stofnað fjölskyldu sem flutti til Pembina í N. Dakota. Árið 1884 flutti Jón svo til Mountain í Thingvallabyggð og bjó þar.
