Kjartan Í Stefánsson

ID: 9587
Fæðingarár : 1871
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1906

Kjartan Ísfel Stefánsson Mynd VÍÆ III

Kjartan Ísfeld Stefánsson fæddist í Flatey á Skjálfanda í S. Þingeyjarsýslu 14. nóvember, 1871. Drukknaði í Winnipegvatni 12. júní, 1906. Stephensen vestra.

Maki: 29. september, 1895 Vilhjálmína Þórunn Oddsdóttir f. í Reykjavík 17. mars, 1872, d. í Manitoba 6. október, 1964.

Börn: 1. Anna Rósa f. 21. júlí, 1898 2. Björg María f. árið 1900, d. sama ár 3. Björg Þórunn f. 20. janúar, 1902, d. 1956 4. Lilja María f. 22. janúar, 1904.

Kjartan fór vestur árið 1878 með sínum foreldrum, Stefáni Jónssyni og Björgu Kristjánsdóttur sem settust að í Mikley. Vilhjálmína flutti vestur til Winnipeg árið 1894 með foreldrum sínum, séra Oddi V Gíslasyni og Önnu Vilhjálmsdóttur. Kjartan lauk skipstjóraprófi og stjórnaði gufubátum á Winnipegvatni. Hann og Vilhjálmína bjuggu í Mikley.