ID: 1404
Fæðingarár : 1873
Fæðingarstaður : Rangárvallasýsla
Dánarár : 1908
Kolbeinn Jónsson fæddist í Rangárvallasýslu 20. nóvember, 1873. Dáinn í Idaho 14. desember, 1908. Corbin Johnson eða Corben Johnson vestra.
Ókvæntur og barnlaus.
Hann flutti vestur til Utah árið 1886 með foreldrum sínum, Jóni Ingimundarsyni og Þórdísi Þorbjörnsdóttur. Bjó í Spanish Fork og stundaði búskap en flutti til Idaho árið 1895.
