Konkordía Sófóníasdóttir fæddist árið 1864 í N. Þingeyjarsýslu.
Maki: Ólafur Guðmundsson f. í N. Þingeyjarsýslu árið 1854. Dáinn í Alberta árið 1894. Goodman vestra.
Börn: 1. Hólmfríður Anna 2. Jónína Laufey 3. Zóphonía. Þau eignuðust dóttur sem dó á barnsaldri. Sú mun hafa fæðst á undan Zóphoníu því hún bar sama nafn.
Ólafur fór vestur árið 1876 en Konkordía fór vestur með móður sinni, Hólmfríði Jónsdóttur og manni hennar, Helga Eymundssyni árið 1883. Ólafur nam land í grennd við Grafton í N. Dakota og reyndi hveitirækt. Hann var óheppinn og leitaði annarra ráða, flutti vestur til Alberta og vann ýmis störf í Calgary. Hann var fyrstur Íslendinga til að setjast þar að og var löndum sínum í N. Dakota hjálplegur þegar þá fýsti vestur á kanadísku sléttuna um 1888. Hann dvaldi í Calgary ein sex ár en nam svo land í íslensku byggðinni norður við Red Deer ána þar sem drukknaði nokkrum árum seinna. Konkordía bjó áfram á landi þeirra en árið 1906 flutti hún til Red Deer með dætrum sínum.
