ID: 3230
Fæðingarár : 1870
Fæðingarstaður : Borgarfjarðarsýsla
Dánarár : 1952
Kristbjörg Jóelsdóttir fæddist 22. desember, 1870 í Borgarfjarðarsýslu. Dáin 5. apríl, 1952 á Brautarhóli í Fljótsbyggð.
Maki: 1901 Gestur Guðmundsson f. 3. ágúst, 1876 í S. Múlasýslu. Dáinn 13. janúar, 1921.
Börn: 1. Guðmundur f. 1901 2. Guðjón f. 1903 3. Einar f. 1905 4. Gestur 1910 5. Ingigerður f. 1912 6. Guðrún Kristbjörg f. 1915. Kristbjörg átti dóttur fyrir: 1. Hallfríður Jónsdóttir f. 1890 í Borgarfjarðarsýslu.
Kristbjörg fór vestur til Winnipeg árið 1900 og fór til Nýja Íslands. Gestur flutti vestur með foreldrum sínum, Guðmundi Jónssyni og Ingigerði Einarsdóttur, til Winnipeg í Manitoba árið 1879 og þaðan til Nýja Íslands. Þau settust að í Fljótsbyggð.
