Kristbjörg Jónsdóttir

ID: 3466
Fæðingarár : 1838
Dánarár : 1916

Kristbjörg Jónsdóttir Mynd VÍÆ IV

Kristbjörg Jónsdóttir fæddist í Hnappadalssýslu árið 1838. Dáin 22. október, 1916.

Maki: 30. júní, 1868 Jóhann Elíasson fæddist 21. janúar, 1840 í Hnappadalssýslu, d. í Lundarbyggð 11. október, 1914. Straumfjörð vestra.

Börn: 1. Jón Elías f.13. mars, 1869 2. Jóhann f. 1872 3. Kristján f. 1874 5. Ragnheiður f. 1878 6. Ástríður f. 1879.

Jóhann fór vestur með Jón Elías árið 1874. Þeir komu til Ontario og skoðaði Jóhann sig um. Hann fór m.a. til Nova Scotia og leist vel á en 1875 snýr hann aftur til Íslands og er þar fram á vor 1876. Þá fara þau hjón vestur til Winnipeg í Manitoba með þá Jóhann og Kristján. Þangað kom svo Jón Elías. Þau fluttu í Mikley í Nýja Íslandi þar sem hann bjó til ársin 1902 en þá fluttu þau brott vegna flóða í Winnipegvatni. Þau námu land í Lundarbyggð og bjuggu þar síðan. Nafnið Straumfjörð er þannig til komið að að þriggja ára gamall flutti Jóhann með foreldrum sínum að Straumfjarðartungu í Miklaholtshreppi.