Kristín Ásmundsdóttir fæddist í N. Múlasýslu 1. október, 1870. Dáin 5. nóvember, 1919 í Manitoba.
Maki: 1896 Bogi Hermanius Sigurgeirsson fæddist í Grund í Eyjafirði 10. apríl, 1869, d. 1. janúar, 1949 í Steveston í Bresku Kólumbíu.
Börn: 1. Anna Hermania f. 5. mars, 1897, d. 26. mars, 1922 2. Sigurveig Ingibjörg f. 8. október, 1898 3. Jónína dó barnung 4. Svanfríður Lilja f. 15. febrúar, 1902 5. Hermanius Bogi f. 22. apríl, 1904 6. Ása Bergþóra f. 17. mars, 1906. Öll fædd í Mikley.
Foreldrar Kristínar voru Ásmundur Þorsteinsson og Bergþóra Jónsdóttir er vestur fluttu árið 1876. Bogi var sonur séra Sigurgeirs Jakobssonar og Ingibjargar Jónsdóttur. Hann fór til Manitoba árið 1889 og bjó fyrst á Gimli. Flutti þaðan ári síðar í Mikley í Nýja Íslandi og bjó þar alla tíð, nema síðasta æviár sitt var hann hjá dóttur sinni í Steveston.