Kristín Björnsdóttir

ID: 11761
Fæðingarár : 1856
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1932

Kristín Björnsdóttir fæddist í N. Múlasýslu árið 1856. Dáin í Minnesota 8. nóvember, 1932.

Maki: 1) Eyjólfur Guðmundsson f. í N. Múlasýslu árið 1851, d. í Minnesota 1881 eftir að hestur sló hann. 2) 6. nóvember, 1884  Jón Sigurðsson f. 1845, d. 20. júlí, 1918. Snidal vestra.

Börn: Með Eyjólfi: 1. Sigurjóna f. 1. júlí, 1879 2. María Guðmunda f. 10. apríl, 1880. Með Jóni: 1. Eyjólfur f. 7. júlí, 1882 2. Ingiríður (Inga) f. 1884 3. Ólöf Sigurbjörg f. 27. maí, 1886 4. Aðalbjörg Þorvaldína f. 16. desember, 1888 5. Guðrún Lilja f. 27. janúar, 1891 6. Björn (Byron) f. 28. janúar, 1893, d. 25. apríl, 1933 7. Karl (Carl) Gunnar f. 3. mars, 1895, d. 21. apríl, 1917.

Kristín flutti vestur með Eyjólfi árið 1880 og settust þau að nærri Minneota. Eftir að hún giftist Jóni bjuggu þau á landi í Westerheim, nærri jörð Björns Gíslasonar, föður Kristínar.