Kristín Guðný Guðnadóttir fæddist í S. Þingeyjarsýslu árið 1866. Dáin árið 1935 í Selkirk.
Maki: 8. ágúst, 1886 í N. Dakota Jón Valdimar Dínusson f. 22. september, 1862 í S. Þingeyjarsýslu, d. í Winnipeg, 9. júní, 1906.
Börn: 1. Kristjana Sigurrós f. 20. júní, 1887, d.1917 2. Anna Sigríður f. 12. febrúar, 1889 3. Björg Ágústa f. 19. desember, 1890, d. 1926 í Manitoba 4. Guðný Rósa f. 20. janúar, 1893 5. Sigurbjörn Gunnlaugur f. 21. júní, 1895, d. 1956 í Selkirk 6. William F. f. 12. október, 1897 7. Lillian Pearl f. 1900, d. sama ár 8. Sylvía Hólmfríður f. 2. júlí, 1902
Kristín fór árið 1882 vestur til N. Dakota með foreldrum sínum, Guðna Guðmundssyni og Rósu Sigurðardóttur sem bjuggu á Mountain í N. Dakota. Jón Valdimar flutti vestur árið 1879 með foreldrum sínum, Dínusi Jónssyni og Kristjönu Andrésdóttur sem settust að í N. Dakota. Jón hóf búskap í Hallson í N. Dakota en flutti um aldamótin til Winnipeg. Eftir lát Jóns flutti Kristín til Selkirk.
