Kristín Guðnadóttir

ID: 9726
Fæðingarár : 1872
Dánarár : 1947

Kristín Sigurveig Þuríður Guðnadóttir fæddist árið 1872 í Máskoti í Reykjadal í S. Þingeyjarsýslu. Dáin í Manitoba 1947.

Maki: Einar Sigvaldason f.  á Grund í Höfðahverfi í S. Þingeyjarsýslu 18. mars, 1865, d. 1951

.Börn: 1. Þórhallur Einar f. 1902 2. Jón Pétur ( John Peter) f. 1904, d. 22. febrúar, 1986 3. Kjartan Ingólfur f. 1907, d. 1990 4. Aðalsteinn Baldur f. 1911, d. 2003.

Einar fór vestur árið 1888 og keypti land í Argylebyggð. Kristín kom vestur árið 1893. Sonur þeirra, John Peter var sendiherra Kanada í Noregi árið 1964, þá voru málefni Íslands líka í höndum hans.