Kristín Hallgrímsdóttir

ID: 8450
Fæðingarár : 1873
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1923

Árni og Sigríður Helga Mynd ACU

Kristín Ingveldur Hallgrímsdóttir fæddist 12. maí, 1873 í Eyjafjarðarsýslu. Dáin 2. janúar 1923

Maki: 1902 Kristinn Frímann Kristinsson f. á Akureyri í Eyjafjarðarsýslu árið 1869, d. 6. nóvember, 1950.

Börn: 1. Sigríður Helga f. 22. september, 1903 2. Árni Frímann f. 21. september, 1905. Dáinn 22.janúar, 1976

Kristinn fór tvítugur vestur um haf árið 1889 og vann fyrstu árin hjá frænda sínum Jóa Freeman í Argyle. Settist seinna að í Garðar, N. Dakota. Vann ýmis störf í þeirri sveit. Kristín fór vestur árið 1891. Foreldrar hennar, Hallgrímur Helgason og Kristbjörg Árnadóttir fóru vestur með systkini Kristínar árið 1889. Fluttu í Framnesbyggð árið 1901 og á sitt eigið land þar 1904.