Kristín Þóra Helgadóttir fæddist árið 1873 í N. Þingeyjarsýslu. Dáin 2. febrúar, 1907 í Manitoba.
Maki: 1903 Vilhjálmur Kristján Sigurgeirsson f. í Eyjafjarðarsýslu 15. október, 1863, d. 31. október, 1923 í Manitoba.
Börn: 1. Sigurgeir Rósberg f. 8. október, 1892, d. 21. nóvember, 1952 2. Helgi f. 28. mars, 1895 3. Ingibjörg Margrét f. 1. febrúar, 1896 4. Þórunn Lára f. 28. maí, 1901 5. Theodór f. 12. júní, 1903 6. Gústaf Axel Williams f. 18. apríl, 1905 7. Kristinn Karl f. 21. janúar, 1907, d. 25. maí, 1962.
Kristín fór vestur með foreldrum sínum, Helga Tómassyni og Margréti Þórarinsdóttur árið 1876. Þau settust að í Nýja Íslandi. Vilhjálmur fór vestur til Nýja Íslands með móður sinni og systkinum árið 1888. Hann var fyrst á Gimli en settist svo að í Mikley þar sem kallað var Mylnuvík.
