Kristín Jóhannesdóttir

ID: 5373
Fæðingarár : 1849

Kristín Jóhannesdóttir fæddist í Húnavatnssýslu árið 1849.

Maki: Jónas Bergmann Jónasson f. í Húnavatnssýslu 16. september, 1829, d. 24. apríl, 1922 í Nýja Íslandi. Bergmann ættarnafn vestra.

Börn: 1. Jóhannes f. 1873 2. Guðmundur fór ekki vestur 3. Sæunn f. 1876 4. Kristín Lilja f. 1877 5. Sigríður Salóme f. 1884 6. Sigfús f. 1885 7. Ásta Marsibil.

Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1887 og settust að í Nýja Íslandi. Námu þar land í Víðinesbyggð og nefndu Víðirnes.