Kristrún Pálína Jónsdóttir fæddist í S. Þingeyjarsýslu árið 1877. Dáin 7. nóvember, 1930 í Saskatchewan. Palina Hjalmarson vestra.
Maki: Torfi Steinsson fæddist í Húnavatnssýslu 10. október, 1869.
Börn: 1. Steinn Vilhelm 2. Jón Bertel 3. Skafti 4. Björn 5. Edward 6. Anna Kristín.
Kristrún flutti vestur til Kanada árið 1883 með foreldrum sínum, Jóni Hjálmarssyni og Önnu Kristjánsdóttur. Þau settust að í Argylebyggð. Torfi flutti vestur um haf til Winnipeg í Manitoba árið 1888. Dvaldi þar til ársins 1890 en þá flutti hann í Argylebyggð. Bjó þar til ársins 1909 og flutti til Glenboro. Hann flutti vestur í Vatnabyggð í Saskachewan ásamt mági sínum, Kristjáni Jónssyni og opnaði verslun í Wynyard sem hann rak til ársins 1920. Hann heimsótti Ísland árið 1914.
