Kristín Jónsdóttir fæddist í S. Þingeyjarsýslu 8.desember, 1853. Dáin 14. júlí, 1956 á Mountain í N. Dakota
Maki: 20. október, 1884 Þorgils Halldórsson f. 9. mars, 1857 í Dalasýslu, d. 1. febrúar, 1942 í N. Dakota.
Börn: 1. Málmfríður 2. Solveig Guðrún 3.Margrét Arnfríður 4.Sigurrós 5. Þorgerður Kristín. Tvær dætur dóu barn ungar 1. Halldóra 2. Björg.
Kristín flutti vestur til Ontario í Kanada ásamt móður sinni, Guðrúnu Grímsdóttur, og þremur bræðrum árið 1873. Þau settust að í Muskoka og bjuggu í Rosseau. Þaðan flutti Kristín til N. Dakota árið 1883. Þorgils flutti vestur til Kanada með foreldrum sínum, Halldóri Þorgilssyni og Málmfríði Tómasdóttur. Þau voru fyrst í Nýja Íslandi en fluttu til Mountain í N. Dakota árið 1881. Þorgils og Kristín bjuggu rétt vestur af Mountain.
