ID: 3502
Fæðingarár : 1827
Fæðingarstaður : Snæfellsnessýsla
Dánarár : 1911
Kristín Jónsdóttir fæddist 19. september, 1827 í Snæfellsnessýslu. Dáin 26. desember, 1911 í Winnipeg.
Maki: Þórarinn Þorvaldsson fæddist í Mýrasýslu 28. september, árið 1823, d. í Nýja Íslandi árið 1893.
Börn: 1. Þorvaldur f. 4. desember, 1855, d. 22. ágúst, 1929 2. Halldóra f. 1866 3. Stefán f. 1869 4. Ástríður f. 1872.
Fluttu vestur um haf árið 1883 og fóru fyrst til Winnipeg í Manitoba. Þaðan lá leiðin til Nýja Íslands þar sem þau námu land við Íslendingafljót. Þorvaldur sonur þeirra fór vestur um haf árið 1876.
