ID: 16374
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1888

Kristín Kristjónsdóttir Mynd VÍÆ I
Kristín Kristjónsdóttir fæddist 12. október, 1888 í Manitoba.
Maki: 8. júní, 1910 Jón Vilsteinn Baldvinsson fæddist í Hnausabyggð 30. nóvember, 1884. Dáinn í Nýja Íslandi 8. nóvember, 1965.
Barnlaus.
Kristín var dóttir Kristjóns Finnssonar og Þórunnar Bjargar Eiríksdóttur í Arborg, Manitoba. Jón Vilsteinn var sonur Baldvins Jónssonar og Arnfríðar Jónsdóttur og bjó alla tíð í Hnausabyggð. Þar stundaði hann búskap og fiskveiðar og tók mikinn þátt í félagsmálum.
