Kristín R Sigurpálsdóttir

ID: 10091
Fæðingarár : 1865
Dánarár : 1957

Kristín Rósa Sigurpálsdóttir Mynd VÍÆ II

Kristín Rósa Sigurpálsdóttir fæddist 23. mars, 1865 í S. Þingeyjarsýslu. Dáin í Saskatchewan 3. júní, 1957.

Maki: 6. desember, 1895 í N. Dakota, Hallgrímur Hálfdanarson fæddist í S. Þingeyjarsýslu 12. ágúst, 1871. Dáinn í Wynyard, Saskatchewan 10. ágúst, 1963. Carl Grimson vestra.

Börn: 1. Pauline f. 10. febrúar, 1897 2. Sigurrós (Rose) f. 15. ágúst, 1900 3. Olavia f. 10. febrúar, 1903 4. Lillian f. 10. október, 1905 5. Walter f. 5. mars, 1919.

Frá vinstri Olive, Pauline, Sigurrós og Lillian Mynd Reflections by the Quills

Kristín flutti frá Húsavík vestur til N. Dakota árið 1890.  Nýgift fluttu þau til Poplar Park í Manitoba og svo til Piney í Manitoba um aldamótin. Þar bjuggu þau í átta ár, fóru þá vestur að Kyrrahafi og settist að í Reymond í Washingtonríki. Voru þar til ársins 1912, fluttu þá til Edmonton í Alberta þar sem þau voru til ársins 1917. Þá lá leiðin til Wynyard í Saskatchewan þar sem þau bjuggu eftir það.