ID: 8105
Fæðingarár : 1876
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Kristín Sigfúsdóttir Bergmann f. 1876 í Eyjafjarðarsýslu.
Maki: 1897 Stefán Magnússon f. í Barðastrandarsýslu árið 1872. Dáinn í N. Dakota 27. september, 1937. Breiðbjörð vestra.
Börn: 1. Valgerður Kristín f. 28. nóvember, 1903 2. Aldís 3. Þórunn 4. Amy 5. Dorothea 6. Sigríður.
Kristín flutti vestur með foreldrum sínum, Sigfúsi Jónassyni Bergmann og konu hans Þórunni Jónsdóttur árið 1882. Stefán fór vestur um haf árið 1884 með föður sínum, Magnúsi Einarssýni og stjúpmóður, Kristínu Guðmundsdóttur. Þau settust að í Mountain í N. Dakota en fluttu þaðan 1885 í Garðarbyggð. Stefán stundaði verslunarstörf í þorpinu Garðar og rak þar pósthúsið um árabil.