Kristín Þorleifsdóttir

ID: 2234
Fæðingarár : 1875
Dánarár : 1900

Kristín Þorleifsdóttir fæddist 18. október, 1875 í Borgarfjarðarsýslu. Dáin í Garðarbyggð í N. Dakota 24. nóvember, 1900

Maki: Steinólfur Steinólfsson f. 19. nóvember, 1873 í Borgarfjarðarsýslu. Dáinn í Vatnabyggð í Saskatchewan 19. október, 1925.

Börn: 1. Gunnar Rafn f. 16. desember, 1896 2. Leifur Sigurður f. 13. mars, 1899 3. Steinunn f. 17. apríl, 1900, d. 30. október, 1900.

Kristín flutti vestur árið 1887 með sínum foreldrum, Þorleifi Gunnarssyni og Sigríði Jónsdóttur, sem settust að í N. Dakota. Steinólfur fór vestur árið 1882 með föður sínum, Steinólfi Grímssyni. Hann ólst upp í Garðarbyggð í N. Dakota en flutti í Vatnabyggð um 1908 og nam land nærri Mozart.