ID: 8746
Einstætt foreldri
Fæðingarár : 1854
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1911

Kristján Abrahamsson og dóttir hans, Jóhanna. Mynd FLNÍ
Kristján Abrahamsson fæddist í Eyjafjarðarsýslu árið 1854. Dáinn í Winnipeg 27. febrúar, 1911.
Maki: Jakobína Ingibjörg Ketilsdóttir f. í Eyjafjarðarsýslu árið 1854.
Börn: 1. Jóhanna f. 1877.
Kristján flutti vestur með Jóhönnu árið 1883 til Winnipeg í Manitoba. Hann var samferða móður sinni, Friðriku Jónsdóttur og systkinum sínum. Kristján nam land í Víðirnesbyggð sem hann nefndi Reynistað. Flutti þaðan til Pipestone í Saskatchewan.
